Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. mars 2021 13:00
Magnús Már Einarsson
Hreggviður Hermanns í Njarðvík (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvík hefur fengið Hreggvið Hermannsson til liðs við sig frá Keflavík.

Hreggviður, sem er fæddur árið 2000, var á láni hjá Víði Garði í fyrrasumar þar sem hann skoraði eitt mark í þrettán leikjum.

„Hreggviður eða Hreggi eins og hann er oftast kallaður hefur gengið til liðs vini okkar í Njarðvík og mun leika með þeim á komandi tímabili, Hreggi lék 4 leiki með Keflavík á sínum ferli. Við viljum þakka Hregga kærlega fyrir gott samstarf og óskum honum alls hins besta hjá Njarðvík! 🙏" segir á Facebook síðu Keflavíkur.

Njarðvík endaði í 4. sæti í 2. deild í fyrra en Bjarni Jóhannsson og Hólmar Örn Rúnarsson tóku við þjálfun liðsins síðastliðið haust.
Athugasemdir
banner
banner
banner