Fotbolti.net
19.03.21 - 07:30
Victor Pálsson

Tuchel gríðarlega hrifinn af Kante

Tuchel gríðarlega hrifinn af Kante
Canon

Mynd: Getty Images

Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, hrósaði miðjumanninum N'Golo Kante mikið eftir leik við Atletico Madrid í Meistaradeildinni í gær.
Chelsea vann 2-0 sigur á Atletico í 16-liða úrslitum og fer áfram í næstu umferð samanlagt, 3-0.

Kante átti góðan leik á miðju enska liðsins og fékk hrós fyrir frammistöðuna frá Tuchel eftir lokaflautið.

„Ég veit aldrei hvað leikmennirnir eru gamlir út frá frammistöðu. Ef þú spilar honum þá ertu með auka hálfan leikmann á vellinum því hans vinnuframlag er einstakt," sagði Tuchel.

„Það er mikil ánægja sem fylgir því að þjálfa hann, það er gjöf fyrir mig. Hann hjálpar svo mikið til á vellinum."

„Það má heldur ekki vanmeta getu hans á boltanum og hvernig hann kemst undan pressu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.