Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 19. mars 2023 16:10
Aksentije Milisic
Enski bikarinn: Brighton fór létt með Grimsby
Mitoma er að spila frábærlega.
Mitoma er að spila frábærlega.
Mynd: Getty Images

Brighton 5 - 0 Grimsby
1-0 Deniz Undav ('6 )
2-0 Evan Ferguson ('51 )
3-0 Evan Ferguson ('70 )
4-0 Solly March ('82 )
5-0 Kaoru Mitoma ('90 )


Brighton varð rétt í þessu þriðja liðið til að tryggja sér farseðilinn í undanúrslit enska bikarsins en liðið mætti Grimsby.

Grimsby hefur gert magnaða hluti í þessari keppni en liðið spilar í fjórðu efstu deild á meðan Brighton er að gera flotti hluti í úrvalsdeildinni.

Staðan í hálfleik var 1-0 en Deniz Undav kom Brighton yfir strax á sjöttu mínútu. Grimsby náði að halda Brighton niðri í fyrri hálfleiknum en í þeim síðari opnuðust allar flóðgáttir.

Hinn ungi og þrælefnilegi Evan Ferguson gerði tvennur fyrir Brighton og þá skoruðu þeir Solly March og Kaoru Mitoma einnig. 6-0 sigur staðreynd hjá Brighton sem er nú komið á Wembley.

Manchester City og Sheffield United eru einnig komin áfram en nú eftir stutta stund hefst leikur Manchester United og Fulham og þá kemur í ljós hvert fjórða liðið verður.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner