Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   fim 19. mars 2026 22:39
Ívan Guðjón Baldursson
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nikolaj Hansen framherji Íslandsmeistara Víkings R. svaraði spurningum eftir að félagið kynnti til leiks nýja treyju með nýjum styrktaraðila.

Niko skoraði 10 mörk í 25 deildarleikjum í fyrra sem er hans þriðja besta markaskorun í efstu deild hér á landi.

„Ég held að þetta sé flottasta treyja sem við höfum spilað í á mínum níu árum hérna hjá Víkingi. Það er gott að fá nýjan aðalstyrktaraðila," sagði Niko sem er nýkominn heim úr æfingaferð.

„Staðan á hópnum er mjög góð, það er búið að vera gaman að æfa úti og fá smá sól en núna æfum við hérna næstu daga til að undirbúa okkur fyrir deildina."

Víkingar hefja titilvörnina gegn stórveldi Breiðabliks og segir Niko að það sé mikil spenna fyrir stórleikinn. Hann býst við mikilli hjálp frá áhorfendum í þeim leik. Markmið tímabilsins er að verja titilinn en það hefur reynst liðum afar erfitt á undanförnum árum.

„Það er alltaf erfiðara að ætla að vinna deildina annað ár í röð. Öll liðin vilja vinna okkur útaf því að við erum ríkjandi meistarar og þetta verður mjög erfitt, en við erum með góðan og stóran hóp og verðum bara að vinna þetta. Það er gott að vera með stóran hóp útaf því að við spilum marga leiki og getum núna róterað aðeins meira.

„Ég vil vera markahæstur í deildinni og vinna deildina aftur. Ég elska að vinna titla."


Niko er mjög ánægður með öflugan liðsstyrk sem Víkingur hefur nælt sér í þennan veturinn. Víkingar eru búnir að styrkja leikmannahópinn sinn gríðarlega mikið og geta í raun teflt fram tveimur ógnarsterkum byrjunarliðum.

Patrick Pedersen var markahæstur í Bestu deildinni í fyrra, hann skoraði 8 mörkum meira heldur en Niko sem endaði í 10.-12. sæti á listanum yfir markahæstu menn tímabilsins.

   27.02.2026 14:00
Ótrúleg breidd Víkings – 27 þekktar stærðir

Slapp
banner