Ótrúleg breidd Víkings – 27 þekktar stærðir

Breiddin hjá Íslandsmeisturunum er ógnvænleg.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Kristinn Bjarnason er að ganga í raðir Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Valdimar hafnaði að fara til Kalmar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það verður hausverkur fyrir Sölva að velja í liðið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ekki nóg með að leikmannahópurinn sé afar breiður heldur er þjálfarateymið einnig öflugt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiddin hjá Íslandsmeisturunum er ógnvænleg.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrátt fyrir að hafa unnið deildina á síðasta ári hafa Víkingar ekki misst mann út í atvinnumennsku. Valdimar Þór Ingimundarson hafnaði tilboði Kalmar og kaus hann frekar að halda áfram vegferðinni með Víkingum.

Svona var vetrarglugginn í Bestu og Lengjudeildinni
Fótbolti.net setti saman tvö byrjunarlið skipuð leikmönnum Víkings. Hópnum er skipt upp í A- og B-lið og er það að sjálfsögðu til gamans gert og þarf alls ekki að endurspegla hvernig þjálfararnir líta á stöðu leikmannanna.
Utan hóps eru þekktar stærðir sem hafa komið lítið við sögu sökum meiðsla eða ungs aldurs. Þeir gætu þó flestallir hæglega spilað stóra rullu í liði Víkings í sumar.
Það er vert að nefna að efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar, að mati Fótbolta.net, á síðustu leiktíð, Daði Berg Jónsson, gerir atlögu í bæði lið en hann hefur verið lengi frá vegna þrálátra meiðsla og er því utan hóps.
Ásamt gífurlegri breidd í leikmannahópnum er mögulegt að setja Aron Baldvin Þórðarson sem þjálfara B-liðsins. Hann er efnilegur þjálfari og reyndu ÍBV að fá hann til að taka við liðinu í vetur. Þá er Viktor Bjarki Arnarsson jafnframt aðstoðarþjálfari liðsins og hafði HK áhuga á honum í vetur.
Utan hóps: Daði Berg Jónsson, Davíð Helgi Aronsson, Þorri Ingólfsson, Atli Þór Jónasson, Sveinn Margeir Hauksson og Jochum Magnússon.



Jóhannes Kristinn Bjarnason er að ganga í raðir Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Valdimar hafnaði að fara til Kalmar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það verður hausverkur fyrir Sölva að velja í liðið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ekki nóg með að leikmannahópurinn sé afar breiður heldur er þjálfarateymið einnig öflugt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




