Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. apríl 2021 11:30
Magnús Már Einarsson
Brottrekstur Mourinho tengist ekki Ofurdeildinni
Mynd: Getty Images
Brottrekstur Jose Mourinho frá Tottenham tengist ekki fréttum gærdagsins um að félagið ætli að taka þátt í að stofna nýja Ofurdeild.

Orðrómur fór a stað á Twitterum í morgun að Mourinho hefði neitað að láta leikmenn Tottenham æfa í morgun til að mótmæla Ofurdeildinni.

Orðrómurinn sagði einnig að Mourinho hefði verið rekinn eftir þessa atburðarás.

Ian Dennis á BBC segir að þessar sögusagnir séu algjört kjaftæði.

The Athletic segir einnig að brottrekstur Mourinho tengist ekkert inngöngu Tottenham í Ofurdeildina.


Athugasemdir
banner
banner
banner