Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 19. maí 2021 12:02
Elvar Geir Magnússon
Hemmi Hreiðars aðstoðar Davíð með U21 landsliðið (Staðfest)
Hermann Hreiðarsson er tekinn við U21 landsliðinu.
Hermann Hreiðarsson er tekinn við U21 landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21 landsliðsins.
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21 landsliðsins.
Mynd: Getty Images
Hermann Hreiðarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari U21 landsliðs karla og mun hann því starfa með Davíð Snorra Jónassyni, sem ráðinn var þjálfari liðsins í janúar á þessu ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ.

Hermann, sem er með UEFA Pro gráðu í þjálfun, er fæddur 1974 og steig hann sín fyrstu skref sem leikmaður í meistaraflokki með ÍBV. Alls lék Hermann 89 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði fimm mörk, og átti langan feril sem atvinnumaður í Englandi.

Á þjálfaraferlinum hefur Hermann starfað sem aðalþjálfari í efstu deildum karla og kvenna hér á landi – þjálfaði karlalið ÍBV sumarið 2013, karlalið Fylkis árin 2015-2016 og kvennalið Fylkis 2017.

Þá hefur hann starfað sem þjálfari í ensku deildarkeppninni hjá Southend United og í indversku deildinni hjá Kerala Blasters. Hermann hefur þjálfað meistaraflokk karla hjá Þrótti Vogum síðan 2020 og mun hann halda því áfram samhliða starfinu með U21 landsliði karla.

„KSÍ býður Hermann velkominn til starfa," segir á heimasíðu KSÍ.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner