Tottenham er 1-2 undir í leikhlé gegn Aston Villa er liðin eigast við í hörkuslag.
Steven Bergwijn kom heimamönnum í Spurs yfir snemma leiks með flottu marki eftir frábært einstaklingsframtak en Sergio Reguilon setti svo jöfnunarmarkið í eigið net.
Markið hjá Reguilon var afar skrautlegt þar sem hann hitti knöttinn illa og skoraði stórglæsilegt mark. Til gamans má geta að þetta var þúsundasta mark í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
Ollie Watkins kom Villa yfir fyrir leikhlé eftir góða pressu frá Bertrand Traore sem vann boltann af Reguilon í tvígang.
Átti Watkins að fá vítaspyrnu?
Sjáðu mark Bergwijn
Sjáðu mark Reguilon
Athugasemdir