Fotbolti.net
19.05.21 - 22:06
Ívan Guðjón Baldursson

Stóri Sam hættir hjá West Brom (Staðfest)

Stóri Sam hættir hjá West Brom (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sam Allardyce hefur tekið ákvörðun um að segja upp knattspyrnustjórastarfi sínu hjá West Bromwich Albion eftir að tímabilinu lýkur. Þetta staðfesti hann eftir 1-3 tap gegn West Ham í kvöld.
Stóri Sam fékk það verkefni um miðjan desember að bjarga West Brom frá falli. Það mistókst en stjórn félagsins vildi þó halda honum áfram við stjórnvölinn.

„West Brom gerði rausnarlegt tilboð til að halda mér við stjórnvölinn en eftir mikla íhugun varð ég að hafna boðinu. Ég get ekki skuldbundið mig til langs tíma á þessum tímapunkti ferilsins," sagði Allardyce.

„Þetta félag þarf einhvern stjóra sem getur verið til langs tíma, einhvern ungan og metnaðarfullan sem getur komið liðinu aftur á góðar slóðir í úrvalsdeildinni."

Sam Allardyce er 66 ára gamall og hefur starfað sem knattspyrnustjóri í þrjá áratugi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.