Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 19. maí 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
„Kane á meiri möguleika á að vinna titla með Tottenham en hjá Man Utd"
Harry Kane
Harry Kane
Mynd: EPA
Teddy Sheringham, fyrrum leikmaður Manchester United og Tottenham, segir að Harry Kane eigi meiri möguleika á því að vinna eitthvað hjá Lundúnarliðinu þessa stundina.

Kane er með 16 mörk og 8 stoðsendingar í deildinni á þessu tímabili en Tottenham er einu stigi frá því að tryggja sæti sitt í Meistaradeild Evrópu.

Enski framherjinn hefur ekki enn unnið titil með Tottenham og leitaðist hann eftir því að fara síðasta sumar. Manchester City vildi fá hann en Daniel Levy, eigandi Tottenham, sagði hreinlega bara nei og setti risaverðmiða á leikmanninn.

En er Kane falur í sumar? Erik ten Hag tekur við hjá Manchester United á næstu dögum og ætlar sér að hreinsa til en Kane hefur verið orðaður við félagið. Sheringham segir að Kane ætti bara að halda sig hjá Tottenham, enda meiri möguleiki á að vinna eitthvað þar í augnablikinu.

„Ef þú værir stuðningsmaður Man Utd þá myndiru óska þess að Kane kæmi. Ef Kane myndi vilja fara þá er ég viss um að öll lið í heiminum hafi áhuga."

„Manchester United er að hrapa niður goggunarröðina hjá stóru leikmönnunum en þetta er samt risafélag. Ef Man Utd hringir þá er erfitt að hafna því, jafnvel þó það sé ekki í Evrópukeppni á næsta tímabili.

„Ég held að það verði erfitt fyrir Erik tenHag að stýra bátnum í rétta átt og ég myndi segja að Tottenham eigi meiri möguleika á því að vinna titla í augnablikinu. Kane er líklegri til að vinna eitthvað hjá Tottenham með Conte heldur hjá Manchester United,"
sagði Sheringham við Genting Casino.
Athugasemdir
banner
banner
banner