Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. maí 2023 17:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bestur í 3. deild - Hann stoppaði allt
Eysteinn Þorri Björgvinsson (Augnablik)
Eysteinn Þorri Björgvinsson.
Eysteinn Þorri Björgvinsson.
Mynd: Augnablik
Eysteinn Þorri Björgvinsson, leikmaður Augnabliks, er leikmaður 2. umferðar í 3. deild karla í boði JAKO.

Eysteinn átti mjög góðan leik þegar Augnablik vann 2-1 sigur gegn Reyni Sandgerði en hann skoraði sigurmarkið fyrir sína menn í uppbótartímanum.

„Hann skoraði sigurmarkið í leiknum eftir að hafa verið frábær í vörninni," sagði Sverrir Mar Smárason í Ástríðunni.

„Þó hann hefði ekki skorað sigurmarkið þá er þetta frammistaða sem verðskuldar leikmann umferðarinnar," sagði Gylfi Tryggvason og bætti við að Eysteinn hafði komið í veg fyrir mörg mörk í leiknum.

„Hann stoppaði allt einhvern veginn," sagði Gylfi.

Hægt er að hlusta á Ástríðuna hér að neðan og í öllum hlaðvarpsveitum.

Bestir í fyrri umferðum:
1. umferð - Vilhjálmur Jónsson (Árbær)



Ástríðan - 2. umferð - Jafnt í Vogunum og Augnablik sterkir
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner