Argentína 1 - 0 Úrúgvæ
1-0 Guido Rodriguez ('13 )
1-0 Guido Rodriguez ('13 )
Argentína vann Úrúgvæ með einu marki gegn engu í Suður-Ameríkubikarnum í nótt en Lionel Messi lagði upp sigurmarkið eftir aðeins þrettán mínútur.
Sigurmarkið kom snemma leiks. Argentína fékk hornspyrnu sem Rodrigo De Paul tók en hann lagði boltann út á Messi sem kom með frábæran bolta á fjærstöngina. Þar var Rodriguez mættur og stangaði hann boltann í stöng og inn.
Úrúgvæ átti afar slakan fyrri hálfleik og kostaði það liðið öll stigin en argentínska liðið lagðist aftur í þeim síðari og náði að uppskera sigurinn.
Argentína er með fjögur stig eftir tvo leiki á meðan Úrúgvæ er án stiga eftir einn leik.
Athugasemdir