Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 19. júní 2022 16:30
Ívan Guðjón Baldursson
Schlager til RB Leipzig á afslætti (Staðfest)
Schlager með Austurríki í Þjóðadeildinni.
Schlager með Austurríki í Þjóðadeildinni.
Mynd: EPA

RB Leipzig er búið að festa kaup á austurríska miðjumanninum Xaver Schlager.


Schlager er 24 ára gamall og þykir gríðarlega öflugur. Hann er metinn á um 30 milljónir evra en Leipzig borgar aðeins 14 milljónir fyrir hann þar sem hann átti aðeins eitt ár eftir af samningnum.

Schlager hefur verið síðustu þrjú ár hjá Wolfsburg en þar áður var hann hjá RB Salzburg. Núna mun hann reyna fyrir sér með Leipzig.

Wolfsburg bauð Schlager nýjan samning í vor en miðjumaðurinn hafnaði honum til að skipta um félag. Borussia Dortmund sýndi honum einnig áhuga.

Schlager á 29 leiki að baki fyrir austurríska landsliðið.


Athugasemdir
banner
banner
banner