Southampton er búið að krækja í pólska markvörðinn Mateusz Lis, sem er 25 ára gamall.
Lis á 8 leiki að baki fyrir yngri landslið Póllands en á eftir að taka stökkið upp í aðalliðið enda gríðarleg samkeppni í pólska hópnum þar sem mikið er um gæði í markvarðarstöðunni.
Lis kemur til Southampton á frjálsri sölu frá Altay, sem féll úr efstu deild tyrkneska boltans í vor.
Lis er annar markvörðurinn sem Southampton krækir í frá byrjun sumars eftir komu Gavin Bazunu frá Manchester City.
Auk Lis og Bazunu er Alex McCarthy á mála hjá félaginu.
Athugasemdir