Fjarðabyggðarhöllin uppfyllir kröfur KSÍ - FHL harmar atvikið og umfjöllunina

Mynd: KR

Mynd: KR

Mikil umfjöllun hefur skapast um aðstæður í Fjarðabyggðarhöllinni eftir að Makayla Soll, fyrirliði KR, úlnliðsbrotnaði á báðum höndum í leik gegn FHL í Lengjudeild kvenna um síðustu helgi.
Atvikið gerðist undir lok fyrri hálfleiks þegar Alexis Simone Wright ýtti Soll á vegg með þeim afleiðingum að hún úlnliðsbrotnaði á báðum höndum og Wright var rekin af velli.

TENGT EFNI
Fyrirliði KR úlnliðsbrotnaði á báðum höndum í Fjarðabyggðarhöllinni
Það kemur fram í frétt á Austurfrétt.is að höllin uppfylli kröfur KSÍ. Þá sendi FHL frá sér yfirlýsingu og harmar umfjöllun þar sem margir furða sig á því að liðið spili í höllinni.
Yfirlýsing FHL
Í leik FHL – KR þann 14. júní sl þá verður það hræðilega slys að leikmaður KR slasast illa, eftir að lenda harkalega á vegg með þeim afleiðingum að hún brotnar á báðum höndum. Í kjölfar brots upp við hornfána og þurfti frá að hverfa í sjúkrabíl.
Við hörmum þá umfjöllun sem hefur fylgt í kjölfarið og hefur það haft töluverð áhrif á lið FHL og þá sjálfboðaliða sem starfa í þessu umhverfi, þar sem allir eru að gera sitt besta.
Fjarðabyggðarhöllinn sem er heimavöllur FHL, uppfyllir þau skilyrði sem reglugerð KSÍ gerir um keppnisvelli í knattspyrnuhúsum. Eins og fram kemur í frétt hjá Austurfrétt í dag stendur til að uppfæra reglugerð KSÍ er varðar öryggi leikmanna á þrengri öryggissvæðum og mun FHL fara yfir þessi mál með eigendum Fjarðabyggðarhallarinnar.
Stjórn, þjálfarar og leikmenn harma atvikið og senda leikmanni KR, Makayla Soll, sínar bestu batakveðjur.

Það verður fróðlegt að sjá hversu langt bann þetta verður.
— Georg Bjarnason (@Georgbjarna) June 18, 2026
Fáránlegt að segja að heppnin hafi verið með henni þegar hún brotnar á báðum úlnliðum.@Fotboltinet pic.twitter.com/GDleMRv8w3