Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. júlí 2021 19:08
Brynjar Ingi Erluson
Feyenoord selur Berghuis til Ajax (Staðfest)
Steven Berghuis er mættur til Ajax
Steven Berghuis er mættur til Ajax
Mynd: Ajax
Hollenska stórveldið Ajax hefur fest kaup á Steven Berghuis frá Feyenoord en Ajax tilkynnti leikmanninn á heimasíðu sinni í dag.

Þetta eru ein umtöluðustu skipti hollenska boltans en Berghuis hefur verið með bestu mönnum deildarinnar síðustu ár og spilað 28 landsleiki fyrir Holland.

Hann var í dag keyptur til Ajax frá Feyenoord og skrifaði hann í kjölfarið undir fjögurra ára samning.

Stuðningsmenn Feyenoord hafa mótmælt skiptunum harðlega og sent Berghuis hótanir en Feyenoord fordæmdi þessa hegðun.

Berghuis spilaði í fjögur ár fyrir Feyenoord þar sem hann vann hollensku deildina og bikarinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner