Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. júlí 2021 14:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sambi í Arsenal (Staðfest)
Albert Sambi Lokonga, kallaður Sambi.
Albert Sambi Lokonga, kallaður Sambi.
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur gengið frá kaupum á belgíska miðjumanninum Albert Sambi Lokonga.

Hann kemur til Arsenal frá Anderlecht og talið er að kaupverðið geti orðið allt að 18 milljónir punda.

Lokonga er 21 árs gamall og þykir mjög spennandi miðjumaður. Hann hefur ekki enn spilað A-landsleik fyrir Belgíu en á sex leiki fyrir U21 landsliðið.

Miðjumaðurinn verður í treyju númer 23 hjá Arsenal með 'Sambi' á bakinu.

Arsenal hafnaði í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.


Athugasemdir
banner
banner
banner