Fotbolti.net
19.08.19 - 19:36
Arnar Helgi Magnússon

Dómaratríóið færði Bóasi gjöf fyrir leik

Dómaratríóið færði Bóasi gjöf fyrir leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Bóas Hreindal Sigubjörnsson er einn allra harðasti stuðningsmaður KR.

Hann lætur sig ekki vanta þegar hans lið, KR, á í hlut. Bóas mætir að sjálfsögðu með rauð og gul spjöld í stúkuna og hjálpar dómurunum við sín verk.
Einar Ingi Jóhannsson er dómari á leik KR og Víkings R. sem er nú í gangi á Meistaravöllum.

Einar Ingi og hans aðstoðarmenn færðu Bóasi gjöf fyrir leikinn.

„Hann Bóas okkar er orðinn landsþekktur ekki síst fyrir vinsamleg tilmæli sín til dómara úr stúkunni. Dómaratríó kvöldsins vildi sýna þakklæti sitt í verki og færði honum nýtt sett af spjöldum að gjöf fyrir leik. Höfðinglegt af Einari, Bryngeiri og Andra," segir á Twitter síðu KR.

Hér að neðan má sjá Bóas með nýju spjöldin, kampakátur!

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.