Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 19. ágúst 2019 14:00
Magnús Már Einarsson
Klopp: Guði sé lof að ég er með þessa sóknarlínu
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hrósaði sóknarlínu sinni í hástert eftir 2-1 sigurinn á Southampton um helgina. Sadio Mane og Roberto Firmino skoruðu mörk Liverpool í leiknum.

„Ég hef oft haft stórkostlega leikmenn í mínum liðum en ekki alltaf heimsklassa leikmenn," sagði Klopp.

„Guði sé lof að ég er með þá núna og þeir gera gæfumuninn. Við þurfum ekki að ræða það."

„Sadio Mane, Bobby Firmino, Mo Salah – þessir gaurar eru framúrskarandi á síðasta þriðjungi."

„Þeir voru alltaf ógnandi, sama hvað þeir voru þreyttir. Það er stórkostlegt og að sjálfsögðu gerðu þeir gæfumuninn."

Athugasemdir
banner
banner
banner