banner
   mán 19. ágúst 2019 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Zidane segir núna að Bale verði áfram
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, segir það nú að Gareth Bale verði áfram hjá félaginu.

Bale var í byrjunarliði Real Madrid um helgina og lagði upp mark í 3-1 sigri á Celta Vigo í 1. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar.

Í sumar talaði Zidane opinskátt um það að hann vildi losna við Bale frá Real Madrid. Bale var nálægt því að fara til Jiangsu Suning í Kína, en Real Madrid hætti við það á endanum. Bale varð áfram í Madríd og Zidane segir núna að hann sé ekki á förum.

„Við töluðum um það fyrir leikinn, og við höfðum talað um það áður að hann myndi vera áfram," sagði Zidane eftir leikinn á laugardag og bætti við að allir leikmennirnir hefðu spilað vel í leiknum.

„Við verðum að hugsa um tímabilið. Ég er viss um að hann og allir leikmennirnir séu einbeittir á að spila fyrir félagið."

Bale er þrítugur og hefur spilað með Real Madrid frá 2013.
Athugasemdir
banner
banner
banner