Maggi Már: Stýrðum leiknum nánast allan leikinn
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding heimsótti ÍBV í Lengjudeild karla í kvöld og endaði leikurinn með 1-0 sigri ÍBV.
Afturelding stýrði leiknum vel á köflum og var Magnús Már Einarsson, þjálfari liðsins, ánægður með sína menn.
„Gríðarlegt svekkelsi, mér fannst við stýra leiknum nánast allan leikinn, sóttum meira, spiluðum meira, fengum fleiri færi. Mér fannst við eiga miklu meira skilið en við fengum hér í dag. Það er kannski hlutrænt mat."
Fyrri leikur þessara liði endaði með 1-2 sigri ÍBV og var þessi leikur ekkert ólíkur þeim leik.
„Þetta er gríðarlega svekkjandi, það eru mörkin sem telja í þessu og þeir skora mörkin. Við þurfum bara að bíta í það súra. Við þurfum að gera betur í vítateignum hjá andtæðingunum til að fá eitthvað út úr því. Spilamennskan á vellinum er fín, spilamennskan milli teiganna er góð."
Mikið leikjálag er á næstunni vegna frestanna á leikjum.
„Þetta er hrikalega gaman, það eru fáar æfingar, margir leikir, bara hrikalega skemmtilegt. Núna í þessari viku eru þrír leikir á einni viku og það verða fleiri svona vikur til enda. Maður er í þessu útaf þessu, fá leiki og strákarnir elska að spila."