Fotbolti.net
19.08.20 - 20:21
Ármann Örn Guðbjörnsson

Siggi Raggi: Það gekk bara allt eftir í dag

Auglýsing
Eysteinn Húni og Sigurður Ragnar, þjáfarar Keflavíkur

Eysteinn Húni og Sigurður Ragnar, þjáfarar Keflavíkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Topplið Lengjudeildar karla, Keflavík fékk Víking Ólafsvík í heimsókn í kvöld á Nettóvöllinn. Frá fyrstu mínútu var bara eitt lið á vellinum sem var að sækja til sigurs en heimamenn gjörsamlega rúlluðu yfir Ólsara. Lokatölur í leiknum 6-1
"Við vissum að þeir væru særðir og við lögðum upp með að koma snemma að þeim marki og það gekk vel. Við spiluðum bara mjög vel bæði í fyrri hálfleik og seinni og náðum að hvíla menn sem var mjög gott þannig það gekk bara allt eftir"



Frans Elvarsson og Joey Gibbs spiluðu báðir 64 mínútur í leiknum í dag stuttu eftir að hafa báðir framlengt við liðið.



"Frábært að þeir hafi báðir viljað gera langtíma samning við okkur. Þeir eru ánægðir hjá okkur og við erum að spila skemmtilegan fótbolta og skora helling af mörkum."



Ari Steinn hefur svo sannarlega stigið vel upp eftir að Adam Ægir Pálsson skyldi við Suðurnesjarliðið og gekk til liðs við Víking Reykjavík.



Siggi segir það alltaf gaman að sjá þegar menn nýta sín tækifæri og passi svona vel inn í leikskipulagið.



Viðtalið má sjá í heild sinni í tækinu hér fyrir ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.