KV tryggði sér í gær sæti í Lengjudeildinni - næst efstu deild - í annað sinn í sögu félagsins.
Árangurinn hjá Knattspyrnufélagi Vesturbæjar er mjög merkilegur í ljósi þess að leikmenn félagsins fá ekki neitt borgað; þeir greiða með sér. Sigurvin Ólafsson, þjálfari liðsins, sagði frá þessu í viðtali eftir sigur á Þrótti Vogum í lokaumferð 2. deildar í gær.
„Það gleymist oft í umræðunni að þetta eru strákar sem eru að gera þetta af ástríðu, það er enginn keyptur í þetta lið og enginn á launum þannig þetta er sigur fyrir fótboltann myndi ég segja," sagði Sigurvin í viðtalinu.
KV er líklega með hvað minnsta fjármagið í 2. deild, líklega ásamt Kára sem er venslafélag ÍA. KV hefur spilað góðan fótbolta í sumar og fer verðskuldað beint upp úr 2. deild eftir að hafa komið upp úr 3. deild í fyrra.
„Strákarnir borguðu boltana sjálfir," sagði Sigurvin. Hjá KV snýst allt um ástríðu.
KV fór upp 2013 og féll þá beint niður. Hvað verður núna?
LENGJUDEILD 2022 !!!!!!!!!!!!!
— KV Fótbolti (@KVfotbolti) September 18, 2021
Athugasemdir