Fotbolti.net
19.10.13 - 09:33
Daníel Freyr Jónsson

Adnan Januzaj með nýjan fimm ára samning (Staðfest)

Adnan Januzaj ásamt David Moyes við undirskriftina.

Adnan Januzaj ásamt David Moyes við undirskriftina.

Canon

Mynd: Man Utd

Adnan Januzaj hefur framlengt samning sinn hjá Manchester United um fimm. Félagið staðfesti þetta í tilkynningu nú rétt í þessu.

Þessi bráðefnilegi 18 ára gamli leikmaður skrifaði undir fimm ára samning, en Januzaj er talinn eitt allra mesta efni sem komið hefur fram hjá United á síðustu árum.
,,Adnan hefur frammúrskarandi hæfileika. Jafnvægi hans, og geta til að taka leikmenn á er einstök,\" sagði David Moyes, stjóri United, við undirskriftina.

,,Það er frábært að geta skrifað undir hjá United. Þetta er sem draumur. Ég mun núna leggja hart að mér til að festa mig í sessi sem leikmann United. Síðan ég kom hingað hefur mér alltaf fundist þetta vera rétta félagið fyrir mig,\" sagði Januzaj.

Gamli samningur Januzaj hefði runnið út næsta sumar og voru stórlið í Evrópu farin að keppast um að fá hann til sín.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.