19.10.13 - 14:07
Magnús Már Einarsson
Gregg Ryder tekinn við Þrótti (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur hefur ákveðið að ráða Gregg Ryder sem þjálfara en þetta staðfesti Jón Kaldal formaður knattspyrnudeildar í samtali við Fótbolta.net í dag. Gregg var í þjálfarateymi ÍBV á nýliðnu tímabili.
Gregg tekur við Þrótti af Zoran Miljkovic sem stýrði liðinu síðari hluta sumars eftir að Páll Einarsson fékk að taka pokann sinn.

Gregg er einungis 25 ára gamall en Jón segir Þróttara ekki vera smeykir við að ráða svo ungan þjálfara.
,,Það hefur verið sagt um fótboltamenn að ef þeir eru nógu góðir þá eru þeir nógu gamlir. Við notum það líka um Gregg,\" sagði Jón við Fótbolta.net í dag.
,,Við erum að fela honum stórt vekefni og það mun koma í ljós hvort hann stendur undir því en við höfum mikla trú á honum. Hann hefur sýnt okkur í haust að hann er ákveðinn maður. Hann var alls ekkert inni í myndinni hjá okkur í haust en sýndi mikið harðfylgi í að koma sér að.\"
,,Hann flaug meðal annars sérstaklega frá Englandi til að fá fund með okkur í stjórninni og það án allra skuldbindinga. Við sögðum honum fyrir það að það væri nánast engur líkur á að hann yrði ráðinn.\"
,,Hann lét ekki segjast, flaug hingað, fékk fund með okkur og kom okkur skemmtilega á óvart. Hann hreif okkur mjög mikið á þessum fundi. Við héldum áfram að spjalla og könnuðum meðmæli og annað og ákváðum að ráða hann í starfið.\"
Gregg er núna staddur í heimalandi sínu Englandi en hann mun taka til starfa hjá Þrótti í næsta mánuði. Gregg hefur verið hjá ÍBV frá 2010 og þjálfaði þar líka 2. flokk karla og aðra yngri flokka. Gregg hefur bakgrunni í þjálfun frá Bandaríkjunum og Englandi og hefur meðal annars starfað fyrir Newcastle, sem er heimaborg hans í Englandi.