Fotbolti.net
19.10.13 - 13:18
Magnús Már Einarsson

Siggi Raggi tekinn við ÍBV (Staðfest)

Siggi Raggi tekinn við ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur verið ráðinn þjálfari ÍBV en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið fyrir stundu.

Hann tekur við liðinu af Hermanni Hreiðarssyni sem hætti fyrir viku af persónulegum ástæðum.
Sigurður Ragnar tilkynnti í ágúst að hann væri hættur að þjálfa kvennalandslið Íslands eftir sjö ára starf.

Hann hefur einnig starfað sem fræðslustjóri KSÍ.

Hann hefur einnig rætt við enska knattspyrnusambandið um að taka við enska landsliðinu en þar á bæ hafa málin dregist og ekki var von á svari fyrr en í nóvember. Með því að skrifa undir við ÍBV er hann hættur við það starf.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.