
Þýski varnarmaðurinn Celine Rumpf hefur framlengt samning sinn við Keflavík og leika með liðinu í Pepsi Max-deildinni næsta sumar.
Keflavík tryggði sér sæti í Pepsi Max-deildinni á dögunum en liðið er í 2. sæti í Lengjudeildinni.
Keflavík tryggði sér sæti í Pepsi Max-deildinni á dögunum en liðið er í 2. sæti í Lengjudeildinni.
Keflavík á eftir leik gegn Haukum í lokaumferðinni en Celine er farin heim á leið og verður ekki með í þeim leik frekar en Claudia Cagnnia og Paula Watnick.
„Erlendu leikmenn kvennaliðs Keflavíkur hafa haldið til síns heima eftir frábært tímabil þar sem stelpurnar tryggðu sig upp í efstudeild.
Einn leikur er eftir á dagskrá hjá stelpunum en samt ákvað stjórn og þjálfarar i samstarfi við leikmenn að þær skyldu fara heim í ljósi aðstæðna," segir á Facebook síðu Keflavíkur.
„Við viljum þakka Celine, Paulu og Claudiu fyrir gott tímabil!
Áfram Keflavík 💪Þess má geta að Celine Rumpf mun snúa aftur á næsta tímabili sem eru frábærar fréttir ✍️
Athugasemdir