Umboðsmaðurinn Mino Raiola er sagður vera að undirbúa viðræður við AC Milan um framlengingu á samningi Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan er 39 ára og gerði eins árs samning við Milan í ágúst en Corriere della Sera segir að hann vilji framlengja dvölina í Mílanó.
Zlatan er 39 ára og gerði eins árs samning við Milan í ágúst en Corriere della Sera segir að hann vilji framlengja dvölina í Mílanó.
Svíinn heldur áfram að vera magnaður og um helgina skoraði hann tvennu í grannaslagnum gegn Inter.
Ekki er búist við því að skrifað verði undir nýja samninginn fyrr en í haust en Zlatan virðist vera farinn á þrýsta á nýjan samning og því líkur á því að hann verði að spila fyrir AC Milan þegar hann heldur uppá 40 ára afmælið sitt.
Athugasemdir