Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 19. nóvember 2020 23:25
Victor Pálsson
Özil valdi engan frá Arsenal
Mynd: Getty Images
Það er ekki einn leikmaður Arsenal sem kemst í fimm manna draumalið Mesut Özil en hann er enn á mála hjá enska félaginu.

Özil birti sitt fimma manna draumalið á Twitter í dag og athygli vekur að Marcus Rashford er þar í fremstu víglínu.

Rashford er á mála hjá Manchester United og hefur aldrei leikið með Özil líkt og Gianluigi Buffon sem er í markinu.

Allir hinir leikmennirnir eru fyrrum samherjar Özil eða þeir Luka Modric, Marcelo og Karim Benzema.

Þeir leika allir með Real Madrid í dag en það var félag Özil áður en hann samdi við Arsenal.

Reglurnar eru þannig að aðeins má velja leikmann frá einu landi og verður hann að vera spilandi í dag.



Athugasemdir
banner
banner
banner