Bæði Mohamed Salah og Mohamed Elneny munu fljúga aftur til Englands á morgun en þeir eru þessa stundina staddir í heimalandi sínu Egyptalandi.
Báðir leikmenn hafa verið í einangrun síðustu daga en þeir greindust með kórónuveiruna.
Einkaflugvél mun fljúga með leikmennina til Englands á morgun en Salah leikur með Liverpool og Elneny með Arsenal.
Þeir munu fara í próf um leið og flugvélin lendir og verða í einangrun næstu tíu dagana.
Samkvæmt Sky Sports eru því allar líkur á að Salah verði ekki með Liverpool gegn Leicester á sunnudaginn í ensku deildinni.
Það er áfall fyrir Liverpool en varnarmennirnir Virgil van Dijk og Joe Gomez eru heldur ekki með vegna meiðsla og verða frá í marga mánuði.
Athugasemdir