Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 20. janúar 2022 16:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vagner Love til Midtjylland (Staðfest)
Í leik með Corinthians árið 2015
Í leik með Corinthians árið 2015
Mynd: Getty Images
Danska félagið Midtjylland tilkynnti í dag um komu brasilíska framherjans Vagner Love til félagsins.

Love er fyrrum landsliðsmaður og lék á sínum tíma 20 landsleiki fyrir þjóð sína. Þessi 37 ár Brassi semur við danska félagið út tímabilið.

Love verður númer nítján hjá Midtjylland og verður liðsfélagið landsliðsmarkvarðarins Elíasar Rafns Ólafssonar.

Á ferli sínum hefur Love lengst af spilað með CSKA Moskvu og í heimalandinu. Hann á þó einnig nokkur tímabil í Kína, Tyrklandi og svo hálft tímabil með Mónakó. Síðast var hann á mála hjá Kairat í Kasakstan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner