Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 20. febrúar 2021 11:25
Ívan Guðjón Baldursson
Stefnir og Bjarki Þór í ÍH (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
ÍH er að styrkja sig fyrir komandi átök í 3. deildinni, eftir að hafa unnið 4. deildina í fyrra.

Í gær fékk liðið til sín tvo nýja leikmenn, varnarmann og miðjumann sem báðir hafa reynslu úr efri deildum.

Varnarmaðurinn Stefnir Stefánsson kemur til félagsins að láni frá ÍR og á hann meðal annars leiki að baki fyrir Hauka og Reyni Sandgerði. Stefnir hefur áður leikið fyrir ÍH og skorað 4 mörk í 24 leikjum með félaginu.

Miðjumaðurinn Bjarki Þór Þorsteinsson er kominn frá KÁ eftir að hafa verið hjá Þrótti í vogum í nokkur ár þar á undan.

Báðir leikmenn eru komnir með leikheimild.
Athugasemdir
banner
banner
banner