Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 20. mars 2021 20:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Karen Guðmundsdóttir í Gróttu (Staðfest)
Mynd: Grótta
Karen Guðmundsdóttir er gengin til liðs við Gróttu og kemur hún á láni frá Val. Karen er átján ára og er hún oftast í hlutverki sókndjarfs miðjumanns. Hún á að baki tvo leiki með meistaraflokki Vals en hún missti af síðasta tímabili sökum meiðsla.

Karen lék árið 2019 þrjá U16 landsleiki og varð bikarmeistari með 2. flokki.

Pétur Rögnvaldsson, annar þjálfara Gróttu, fagnar komu Karenar á Nesið: „Það eru frábær tíðindi fyrir Gróttu að Karen sé gengin til liðs við félagið. Karen er fjölhæfur miðjumaður sem kemur með aukin gæði og kraft inní hópinn okkar. Hún mun án efa styrkja liðið og hjálpa okkur í komandi átökum í Lengjudeildinni," sagði Pétur.

Karen var spennt að vera komin í Gróttu: „Mér líst mjög vel á Gróttu. Hér er góð umgjörð og liðið hefur gert spennandi hluti síðustu ár. Ég hlakka til að komast aftur á fullt eftir erfið meiðsli og ég er viss um að það sé spennandi tímabil framundan í Gróttu," sagði miðjumaðurinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner