Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. mars 2021 20:23
Victor Pálsson
Mikael Egill framlengir við SPAL (Staðfest)
Mynd: SPAL
Mikael Egill Ellertsson hefur skrifað undir nýjan samning við lið SPAL sem leikur í ítölsku B-deildinni.

Þetta var staðfest í dag en Mikael er fæddur árið 2002 og er lykilmaður í U19 liði félagsins.

Um er að ræða efnilegan miðjumann sem kom fyrst í U17 lið SPAL frá Fram í ágúst árið 2018.

Mikael hefur alls spilað 18 leiki fyrir U19 lið SPAL á tímabilinu í bæði deild og bikar. Hann hefur skorað í þeim fimm mörk.

Samningurinn gildir til næstu tveggja ára eða til árisins 2023.


Athugasemdir
banner
banner