Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. mars 2021 22:03
Victor Pálsson
Myndband: Markmaður Sevilla skoraði og reif sig úr treyjunni
Mynd: Getty
Markvörðurinn Bono reyndist hetja Sevilla í kvöld sem spilaði við Real Valladolid í efstu deild Spánar.

Sevilla var að tapa leiknum á 95. mínútu þegar Bono fékk grænt ljós á að taka þátt í hornspyrnu liðsins.

Eftir smá darraðadans innan teigs þá barst boltinn til Bono sem þrumaði knettinum í netið til að jafna metin.

Það þarf kannski ekki að taka það fram en þetta var fyrsta mark Bono á ferlinum.

Bono kom til Sevilla frá Girona á síðasta ári og hefur spilað 21 leik fyrir liðið og nú skorað eitt mark!

Hann fagnaði markinu auðvitað vel og reif sig úr treyjunni í kjölfarið.


Athugasemdir
banner
banner
banner