Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. mars 2021 06:00
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Heimasíða Leiknis 
Patryk framlengir við Leikni og fer á lán í KV (Staðfest)
Patryk Hryniewicki og framkvæmdastjóri Leiknis, Stefán Páll Magnússon.
Patryk Hryniewicki og framkvæmdastjóri Leiknis, Stefán Páll Magnússon.
Mynd: Leiknir
Miðvörðurinn Patryk Hryniewicki hefur skrifað undir nýjan samning við Leikni í Breiðholti út tímabilið 2023.

Patryk er fæddur árið 2000 og er uppalinn hjá Leiknismönnum.

Eftir að hann skrifaði undir þá var hann lánaður í KV.

„Félagið hefur mikla trú á framþróun leikmannsins unga en hann verður í góðum höndum í Vesturbænum í sumar þar sem hann hefur verið lánaður í 2. deildarliðið KV út komandi tímabil," segir á heimasíðu Leiknis.

Í fyrra var hann lánaður í Ægi og Elliða og var valinn í úrvalslið 3. deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner