Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 20. mars 2021 19:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þýskaland: Schalke getur ekki neitt
Mynd: Getty Images
Schalke 04 0 - 3 Borussia M.
0-1 Lars Stindl ('15 )
0-2 Stefan Lainer ('63 )
0-3 Frederik Ronnow ('72 , sjálfsmark)

Schalke hefur unnið einn leik í deildinni á leiktíðinni og gert jafntefli í sjö. Tíu stig var liðið með fyrir leik dagsins á heimavelli gegn Gladbach og liðið er áfram með tíu stig.

Schalke sýndi nánast engann lit í dag, hélt boltanum illa, átti einungis eitt skot á mark gestanna. Gladbach stýrði ferðinni gjörsamlega í leiknum þrátt fyrir að Schalke hafi haft betri hvíld fyrir leikinn, Gladbach spilaði gegn Man City í vikunni.

Lars Stindl, Stefan Lainer og sjálfsmark frá Frederik Ronnow voru þeir sem komust á blað í 0-3 útisigri Gladbach sem er um miðja deild. Schalker er svo gott sem fallið þegar átta umferðir eru eftir, ellefu stig eru upp í Herthu sem á leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner