Fotbolti.net
22.06.26 - 09:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Frá Suðurnesjum á HM

Varði mark Víðis á árunum 2022-2025.

Varði mark Víðis á árunum 2022-2025.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Joaquin Ketlun (1996) er markmannsþjálfari Paragvæska landsliðsins sem náði í gríðarlega sterkarn 1-0 sigur gegn Tyrkjum á HM aðfaranótt laugardags. Vísir vakti athygli á þessu um helgina.

Ketlun þekkir mjög vel til á Íslandi en hann er fyrrum markmaður bæði Víðis og Sindra. Fyrir þremur árum rataði hann í fréttirnar eftir bónorð á æfingu með Víði. Hann er nú í Bandaríkjunum þar sem Paragvæ á mjög góðan möguleika á sæti í 32-liða úrslitunum.
Bónorð á æfingu hjá Víði Garði
TENGT EFNI

Bónorð á æfingu hjá Víði Garði

Ketlun er Argentínumaður sem kom fyrst til Íslands árið 2021 og varði þá mark Sindra. Hann var svo í kjölfarið hjá Víði í þrjú tímabil og var fyrirliði liðsins sem vann fyrsta Fótbolti.net bikarinn árið 2023. Hann varði mark Víðis í 18 leikjum í 2. deildinni í fyrra og meðfram því var hann markmannsþjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur í Lengjudeildinni.

Framundan er leikur hjá Paragvæ gegn Ástralíu og er sá leikur úrslitaleikur um 2. sætið í D-riðli HM.

Í Hinni hliðinni hér á Fótbolti.net sagði Markús Máni Jónsson, fyrum leikmaður Víðis, skemmtilega sögu af Ketlun fyrir síðasta tímabil.

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Í síðasta leiknum okkar á móti Kára sem fór í vítaspyrnu keppni og Joaquin Ketlun segir okkur ekki að hafa áhyggjur því hann er að fara að verja allavegana 3 vítaspyrnur, síðan ver hann 3 vítaspyrnur og skorar úr síðustu spyrnunni.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Joaquin með Fótbolti.net bikarinn á Laugardalsvelli.

Joaquin með Fótbolti.net bikarinn á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.