Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 20. apríl 2021 19:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Souness: Þeir munu ekki fyrirgefa John Henry þetta
Mynd: Getty Images
Það virðist allt stefna í að ekkert verði að áformum tólf af stærstu félögum Evrópu um stofnun svokallaðrar Ofurdeildar. Það var fyrst greint frá því að Chelsea ætlaði sér ekki að taka þátt og Manchester City fylgdi í kjölfarið.

Greame Souness, fyrrum fyrirliði Liverpool, tjáir sig um málið á Sky Sports í kvöld.

Hann segir að stuðningsmenn Liverpool muni ekki fyrirgefa John Henry eiganda Liverpool fyrir þessi áform sín.

„Hann var að leita að skjótum gróða. Ég veit ekki hvernig hann kemur til baka úr þessu. Þetta hefur verið í gangi í marga mánuði og ekkert kokkað upp á stundinni. Það þarf að laga sambönd sem hafa verið eyðilögð. Ég held að Liverpoolbúar muni ekki fyrirgefa honum þetta, ég veit hvernig þeir eru," sagði Souness meðal annars.


Athugasemdir
banner
banner