Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 20. maí 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Schmidt tekur við Benfica (Staðfest)
Roger Schmidt tekur við Benfica
Roger Schmidt tekur við Benfica
Mynd: EPA
Þýski þjálfarinn Roger Schmidt er búinn að gera tveggja ára samning við portúgalska félagið Benfica og tekur samningurinn gildi í sumar.

Schmidt hefur þjálfað hollenska félagið PSV Eindhoven síðustu tvö ár en hann vann meðal annars hollenska bikarinn og Johan Cruyff-skjöldinn á tíma sínum þar.

Félagið ákvað að framlengja ekki samning hans og var honum því frjálst að fara í sumar.

Það tók hann ekki langan tíma að finna sér nýtt félag en á miðvikudag skrifaði Schmidt undir tveggja ára samning við portúgalska félagið Benfica.

Benfica er sigursælasta félagið í sögu portúgalska boltans en hefur ekkert unnið síðan 2019.
Athugasemdir
banner
banner
banner