Fotbolti.net
20.05.26 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Atlético náði samkomulagi við Wolves

Joao Gomes hefur verið meðal allra bestu leikmanna Wolves á undanförnum árum.

Joao Gomes hefur verið meðal allra bestu leikmanna Wolves á undanförnum árum.

Canon

Mynd: EPA

Spænska stórveldið Atlético Madrid er búið að ná samkomulagi við Wolves, sem er fallið úr ensku úrvalsdeildinni, um kaup á miðjumanninum Joao Gomes.
Samkomulagið hljóðar upp á 45 milljónir evra sem Atlético þarf að greiða til að fá Gomes úr röðum Úlfanna í sumar.

Gomes er 25 ára og leikur sem varnarsinnaður miðjumaður. Hann er með 10 landsleiki að baki fyrir Brasilíu en var ekki valinn í lokahópinn fyrir HM.

Gomes kveður stuðningsmenn Wolves í lokaleik tímabilsins á sunnudaginn en hann hefur verið lykilmaður fyrir félagið allt frá komu sinni fyrir þremur og hálfu ári síðan.

Hann hefur í heildina spilað 130 keppnisleiki fyrir Wolves en félagið neyðist til að selja hann og aðra lykilmenn eftir fall úr úrvalsdeildinni.

Atlético er einnig að skoða annan Gomes til að kaupa í sumar. William Gomes er tvítugur kantmaður sem gerði flotta hluti með Porto á tímabilinu.

Atletico nær samkomulagi við miðjumann Wolves
TENGT EFNI

Atletico nær samkomulagi við miðjumann Wolves

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.