Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 19:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Atletico nær samkomulagi við miðjumann Wolves
Mynd: EPA
Atletico Madrid hefur náð munnlegu samkomulagi við Joao Gomes, miðjumann Wolves, um að ganga til liðs við félagið í sumar. Fabrizio Romano greinir frá þessu.

TalkSport greinir frá því að viðræður milli félagana séu á lokastigi og eru nálægt því að ná samkomulagi um 45 milljón evra kaupverð.

Brasilíski miðjumaðurinn hefur einnig verið orðaður við Crystal Palace eftir að Wolves féll úr ensku úrvalsdeildinni. Gomes er 25 ára en hann gekk til liðs við Úlfana frá Flamengo í heimalandinu í janúar 2023.

Atletico hefur einnig náð munnlegu samkomulagi við Ederson, miðjumann Atalanta en félögin hafa ekki náð samkomulagi.
Slapp
banner
banner