Fotbolti.net
20.06.20 - 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Andri Hjörvar: Förum inn í leikinn gegn Val fullar sjálfstrausts

Auglýsing
Andri Hjörvar: Förum inn í leikinn gegn Val fullar sjálfstrausts
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hertz
„Ég er ángður með fjögur mörk og engin mörk á okkur, það er frábært," sagði Andri Hjörvar Albertsson. þjálfari Þór/KA, eftir sigur sinna leikmanna gegn ÍBV í dag.
Þór/KA er með sex stig eftir tvo leiki og átta mörk skoruð. Það skilar liðinu í toppsæti deildarinnar, draumabyrjun hjá liðinu.

„Frábært, get ekki verið að kvarta yfir miklu, magnað að skora átta mörk. Vonandi höldum við áfram á sömu braut."

Þór/KA mætir Íslandsmeisturum Vals í 3. umferð í næstu viku. Mun Andri leggja þann leik öðruvísi upp en leikinn í dag?

„Já alveg örugglega án þess að gefa upp einhver leyndarmál hér. Við mætum þar allt allt öðruvísi liði en við höfum mætt í fyrstu tveimur leikjunum en hausinn okkar verður á sama stað og venjulega. Við förum í leikinn gegn Val fullar sjálfstrausts og getum ekki beðið eftir honum."

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.