Hinn 32 ára gamli Javi Martinez er farinn til Qatar SC en þessu greinir hann sjálfur frá í Twitter færslu félagsins.
Martinez á farsælan feril að baki í evrópu en hann spilaði yfir 200 leiki með Atletic Bilbao áður en hann hélt til Bayern Munchen þar sem hann spilaði 268 með félaginu.
Martinez fór frá Bayern eftir síðasta tímabil en hann og félagið komust að samkomulagi um að framlengja ekki samninginn.
Qatar SC er í sömu deild og Al Arabi sem landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson leikur með.
🚨 OFFICIAL: Qatar SC unveil their new recruit - Javi Martinez!! https://t.co/79jAzFyQo7
— Qatar Football Live (@QFootLive) June 20, 2021
Athugasemdir