Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 20. júní 2022 11:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bjössi Hreiðars vildi lítið tjá sig - „Ætla aðeins að hugsa minn gang"
Bjössi Hreiðars
Bjössi Hreiðars
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurbjörn Hreiðarsson sagði 'no comment' þegar hann var spurður út í atburði fimmtudagsins þegar Fótbolti.net heyrði í honum.

Bjössi var aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar hjá FH en hann og Óli voru látnir fara sem þjálfarar meistarflokks karla eftir jafntefli gegn Leikni á fimmtudag.

En ætlar Bjössi strax að leita sér að nýju starfi í boltanum?

„Ég ætla leyfa þessu aðeins að rúlla, aðeins að hugsa minn gang. Maður er ekkert hættur í þjálfun, það er ljóst, en ég er rólegur akkúrat þessa stundina. En auðvitað er fótboltinn þannig að ef það kemur eitthvað upp þá er það bara að hrökkva eða stökkva," sagði Bjössi.

Hann var ráðinn aðstoðarþjálfari FH síðasta haust og hafði áður unnið með Ólafi hjá bæði Haukum og Val.

Eiður Smári Guðjohnsen hefur verið ráðinn þjálfari FH og Sigurvin Ólafsson mun vera honum til aðstoðar. FH er í níunda sæti Bestu deildarinnar, með átta stig eftir níu umferðir.

Fréttaritari reyndi að ná á Ólafi við gerð fréttarinnar en án árangurs.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner