mán 20. júní 2022 14:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fortuna Sittard kaupir Hildi frá Breiðabliki (Staðfest)
Mynd: Fortuna Sittard
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hildur Antonsdóttir hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Breiðablik, í bili hið minnsta.

Hollenska félagið Fortuna Sittard hefur hefur komist að samkomulagi við Breiðablik um að fá Hildi til liðs við sig. Hún skrifar undir tveggja ára samning við Sittard sem spilar í efstu deild í Hollandi.

Hildur er 26 ára gömul og hefur spilað með Blikum síðastliðin sex ár, kom frá Val árið 2016. Á þeim tíma hefur hún spilað 138 leiki með liðinu, skorað 38 mörk og tekið þátt í að vinna tvo Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla auk þess að komast fyrst íslenskra félagsliða í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Hildur á tvo A-landsleiki að baki og 40 leiki með yngri landsliðum.

„Hildur hefur sannað sig sem einn allra besti leikmaður íslensku deildarinnar, en aðeins eru tvö ár síðan hún sleit krossband. Hún hefur hins vegar komið gríðarlega sterk til baka og hefur vakið athygli erlendra liða með fammistöðu sinni hjá Breiðablik.
Það verður missir af Hildi í Kópavoginum, en hún hefur verið ekki aðeins verið frábær í Blikabúningnum innan vallar, heldur einnig mikil fyrirmynd utan vallar."

„Takk fyrir ómetanlegan tíma í Kópavoginum Hildur, og gangi þér sem allra best í Hollandi þar sem við hlökkum til að fylgjast með þér 💚,"
segir í tilkynningu Breiðabliks.

Hildur fer út til Hollands í lok júlí. Fortuna Sittard er nýtt félag og er í fyrsta sinn að taka þátt í kvennaflokki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner