Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 20. júní 2022 18:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lazio hefur áhuga á tveimur leikmönnum Chelsea
Maurizio Sarri.
Maurizio Sarri.
Mynd: EPA
Maurizio Sarri, stjóri Lazio, er að horfa til Chelsea á leikmannamarkaðnum í sumar.

Sarri er fyrrum stjóri Chelsea og er hann sagður vilja fá tvo fyrrum lærisveina til ítölsku höfuðborgarinnar - Róm.

Samkvæmt Il Corriere dello Sport þá hefur Chelsea áhuga á því að fá vinstri bakvörðinn Emerson og miðjumanninn Ruben Loftus-Cheek í sumar.

Emerson varði síðasta tímabili á láni hjá Lyon í Frakklandi og spilaði þar vel, en hann er ekki vera sagður inn í myndinni hjá Thomas Tuchel. Loftus-Cheek spilaði 40 leiki með Chelsea í öllum keppnum á síðustu leiktíð og skoraði eitt mark.

Sarri þekkir þessa tvo leikmenn mjög vel og vill ólmur fá þá yfir til Ítalíu.

Lazio hafnaði í fimmta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar á síðasta keppnistímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner