Bayern hefur gert tilboð í Díaz - Liverpool vill Ekitike
   mán 20. júní 2022 10:53
Elvar Geir Magnússon
Sigurvin hættir með KV eftir næsta leik (Staðfest) - Aðstoðar Eið hjá FH
Sigiurvin Ólafsson.
Sigiurvin Ólafsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurvin Ólafsson mun hætta þjálfun KV í Lengjudeildinni eftir næsta leik liðsins, leikinn gegn Þrótti Vogum á miðvikudaginn. Hann er að taka við aðstoðarþjálfarastöðunni hjá FH þar sem hann verður með Eiði Smára Guðjohnsen.

Sigurvin hefur verið aðstoðarþjálfari KR samhliða því að þjálfa KV. Undir stjórn Sigurvins komst KV upp í Lengjudeildina en liðið situr þar í ellefta sæti sem stendur.

Hjá KR virtist hlutverk Sigurvins sem aðstoðarþjálfari hafa minnkað í kjölfar þess að Bjarni Guðjónsson og Viktor Bjarki Arnarsson hafa verið í liðsstjórn.

Eiður Smári var kynntur sem nýr þjálfari FH í gær en Ólafur Jóhannesson var rekinn eftir jafntefli gegn Leikni í síðustu viku.

Sigurvin er fyrrum leikmaður FH, spilaði með liðinu 2006 og 2007. Hann varð Íslandsmeistari með liðinu fyrra árið.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner