mán 20. júní 2022 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Veltur á Man Utd hvort Bernardo Silva fari til Barcelona
Mynd: EPA
Bernardo Silva, miðjumaður Manchester City, langar að spila fyrir spænska félagið Barcelona.

Pep Guardiola, stjóri City, var spurður út í Bernardo (27 ára) og hafði þetta að segja:

„Eins og þetta lítur út í dag þá held ég að Bernardo verði hjá Man City á næsta tímabili. En eins og ég hef alltaf sagt þá vil ég ekki halda leikmönnum sem eru óánægðir."

Bernardo bíður eftir tilboði frá Barcelona en það mun að öllum líkindum velta á því hvort Manchester United, nágrannar City, fái Frenkie de Jong (25 ára) frá Barcelona.

United hefur verið orðað við De Jong í sumar en Barcelona vill fá risaupphæð fyrir hollenska miðjumanninn. Barcelona er sagt vilja fá 73 milljónir punda fyrir De Jong sem er nálægt þeirri upphæð sem City vill fá fyrir Bernardo.

Sjá einnig:
Man Utd undirbýr annað tilboð í De Jong
Silva hefur tjáð Man City að hann vilji fara til Barcelona
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner