Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 20. júlí 2021 16:30
Elvar Geir Magnússon
Grujic frá Liverpool til Porto (Staðfest)
Marko Grujic er kominn til Porto.
Marko Grujic er kominn til Porto.
Mynd: Porto
Porto hefur keypt serbneska miðjumanninn Marko Grujic frá Liverpool á 10,5 milljónir punda.

Grujic var hjá Porto á lánssamningi á síðasta tímabili og spilaði þá 28 deildarleiki og átta Meistaradeildarleiki.

Grujic var fyrsti leikmaðurinn sem Jurgen Klopp fékk til Liverpool en hann var keyptur frá Rauðu Stjörnunni í Belgrad í janúar 2016.

Alls lék hann sextán leiki fyrir Liverpool en var einnig á láni hjá Cardiff City, Herthu Berlín og Porto.

Grujic er 25 ára gamall.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner